Maria Nila Litanæring Cacao Intense

2.990 kr.4.990 kr.

Colour Refresh er mildur, tímabundinn hármaski með lit. Með því að nota Colour Refresh geturðu á einfaldan hátt frískað upp á þinn eigin hárlit eða skipt um lit. Liturinn helst í hárinu í u.þ.b. 4 – 10 hárþvotta.  Athugið að  útkoman fer eftir ástandi hársins og liturinn verður sterkari í efnameðhöndluðu eða gljúpu hári. Til að ná fram rétta litatóninum er hægt að blanda saman mismunandi Colour Refresh litum.

Vörunúmer: Á ekki við Flokkur: Merkimiðar: , ,

Lýsing

Colour Refresh er nærandi maski með litarögnum sem fríska upp litinn í hárinu á skömmum tíma. Útkoman fer eftir ástandi hársins og liturinn verður sterkari í efnameðhöndluðu eða gljúpu hári. Til að ná fram rétta litatóninum er hægt að blanda saman mismunandi Colour Refresh-litum eða nota hefðbundna næringu til að milda litinn sem er valinn. Liturinn helst í hárinu í u.þ.b. 4-10 hárþvotta, en það fer eftir áferð og ástandi hársins.

Cacao Intense er kjörinn fyrir ljósbrúnt og dökkt hár. Hafið í huga að litamaski getur ekki lýst hárið.

  • Hentar fyrir ljósbrúnt og dökkt hár (tón 2-6)
  • Fyrir ljósara hár, blandið hefðbundinni næringu til að ekki sé hætta á að liturinn verði of dökkur eða mislitur
  • Hylur ekki grátt hár
  • Notist ekki rétt fyrir aflitun/strípur þar sem litamismunur gæti átt sér stað
  • Colour Guard Complex
  • 100% vegan & animal friendly
  • CO2 kolefnisjafnaðar umbúðir

Notkun:

  • Þvoið hárið með sjampói og skolið vel, það býr hárið undir litanæringuna og hjálpar litaögnum að fara inní hárið.
  • Þurrkið hárið með handklæði, kreistið umframvatn úr hárinu og þurrkið vel.
  • Notið hlífðarhanska.
  • Berið næringuna í hárið. Passið að bera jafnt og þétt í allt hárið svo það fái sem jafnastan lit. Gott er að nota fingurna eða greiðu.
  • Leyfið litanæringunni að bíða í 3-10 mín, fer eftir hversu mikilli dýpt litar óskað er eftir.
  • Skolið næringuna vel úr hárinu.
  • Gott er að setja venjulega næringu í hárið í lokin til koma í veg fyrir að liturinn renni of fljótt úr. Skolið.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Maria Nila Litanæring Cacao Intense”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *