Colour Refresh Cool Cream Litanæring
3.150 kr. – 5.290 kr.Price range: 3.150 kr. through 5.290 kr.
MARIA NILA COLOUR REFRESH LITANÆRINGAR
Colour Refresh er nærandi maski með litarögnum sem fríska upp litinn í hárinu á skömmum tíma. Útkoman fer eftir ástandi hársins og liturinn verður sterkari í efnameðhöndluðu eða gljúpu hári. Til að ná fram rétta litatóninum er hægt að blanda saman mismunandi Colour Refresh-litum eða nota White Mix til að milda litinn sem var valinn. Liturinn helst í hárinu í u.þ.b. 4-10 hárþvotta, en það fer eftir áferð og ástandi hársins.
Cool Cream er kjörinn fyrir ljóst hár. Hafið í huga að litamaski getur ekki lýst hárið.
- Hentar fyrir ljóst hár (tón 8-10)
- Hylur ekki grátt hár
- Notist ekki rétt fyrir aflitun/strípur þar sem litamismunur gæti átt sér stað
- Colour Guard Complex
- 100% vegan & animal friendly
- CO2 kolefnisjafnaðar umbúðir
Notkun
- Þvottur – Þvoið hárið með sjampói. Það undirbýr hárið fyrir meðferðina og hjálpar lita pigmentunum að festast við hárið.
- Handklæða þurrka hárið – Þurrkið mestu bleytuna með handklæði.
- Búið til litablöndu og berið Color Refresh á hárið – Búðu til þína eigin blöndu eða notaðu tilbúinn Color Refresh lit einan og sér. Berið jafnt yfir allt hárið og greiðið yfir eða nuddið vel inn með höndunum og notið hanska.
- Biðtími – Leyfið maskanum að bíða í hárinu í 3-10 mínútur, fer eftir hversu sterkan litatón þú vilt hafa.
- Skolið – Skolið vel með vatni og gætið þess að ná öllum maskanum burt.
- Næring – Ljúkið meðferðinni með næringu. Næring lokar hárinu og passar að lita pigmentin leki ekki strax úr.
Það eru engar umsagnir enn.