Colour Refresh Cacao Red Litanæring
Price range: 2.520 kr. through 4.232 kr.
Colour Refresh er mildur, tímabundinn hármaski með lit. Með Colour Refresh geturðu á einfaldan hátt frískað upp á þinn eigin hárlit eða skipt um lit. Liturinn helst í hárinu í u.þ.b. 4 – 10 hárþvotta. Tvö pör af hönskum fylgja með í hverri öskju. Athugið að útkoman fer eftir ástandi hársins og liturinn verður sterkari í efnameðhöndluðu eða gljúpu hári. Til að ná fram rétta litatóninum er hægt að blanda saman mismunandi Colour Refresh litum.
Notkun:
- Þvoið hárið með sjampói og skolið vel, það býr hárið undir litanæringuna og hjálpar litaögnum að fara inní hárið.
- Þurrkið hárið með handklæði, kreistið umframvatn úr hárinu og þurrkið vel.
- Notið hlífðarhanska.
- Berið næringuna í hárið. Passið að bera jafnt og þétt í allt hárið svo það fái sem jafnastan lit. Gott er að nota fingurna eða greiðu.
- Leyfið litanæringunni að bíða í 3-10 mín, fer eftir hversu mikilli dýpt litar óskað er eftir.
- Skolið næringuna vel úr hárinu.
- Gott er að setja venjulega næringu í hárið í lokin til koma í veg fyrir að liturinn renni of fljótt úr. Skolið.
- Tvö pör af hönskum fylgja með hverri litanæringu.
Það eru engar umsagnir enn.