Skip to main content
https://www.youtube.com/watch?v=3bpOGUN5cJ0

BRUNS vörurnar eru mildar, náttúru- og umhverfisvænar hárvörur fyrir fagfólk og almenning. Vörurnar eru þróaðar af hárgreiðslumeisturum fyrir hárgreiðslufólk. Hver einasta vara er með sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær eru skaðlausar umhverfi, fólki og dýrum.

Þú finnur muninn eftir fyrsta þvott

Magnaður munaður

Nr. 01 Harmonisk kokos

Nánar um Nr. 01 Harmonisk kokos

Hreinar í húð og hár

Ofnæmisvottaðar, engin aukaefni, engin ilmefni, aðeins það besta

Nánar um Nr. 03 Oparfymerat

Með sjálfbærni og umhverfisvitund að leiðarljósi eru allar vörurnar vandlega gerðar með viðskiptavininn í huga, hvort sem það er hárgreiðslumeistarinn þinn eða þú.

Margverðlaunaðar

Og ekki að ástæðulausu

Hvað þýða innihaldsefnin?

Náttúrulegar og nærandi

Decyl Glucoside

Er ójónað yfirborðsvirkt efni sem er tilvalið í alla framleiðslu þar sem reynt er að ná fram freyðandi og hreinsandi áhrifum. Unnið úr fitualkahóli (finnst í náttúrulegri plöntufitu og olíum) og glúkósa (sykrum). Decyl Glucoside verður til þegar glúkósi og kókosfita mynda efnahvörf. Efnið er náttúrulegt, milt, unnið úr plöntum og niðurbrjótanlegt.

Sodium cocoyl glutamate

Er milt efni unnið úr plöntum, kókosfitu, pálmakjarnaolíu eða glúkósa (úr maís). Efnið er notað til að fá freyðandi áhrif og sem bindiefni í húð- og hárvörum og hjálpar vatni að bindast olíu. Efnið er fullkomlega náttúrulegt og skaðlaust.

Sodium Laurylglucosides Hydroxypropylsulfonate

Ath! Ekki súlfat, þó að nafnið gefið það mögulega til kynna. Efnið er algjörlega skaðlaust og er unnið úr sykrum (glúkósa). SLH er yfirborðsvirkt efni sem er ætlað að ná fram góðri froðu og jafnvægi milli vatns og olíu.

Glycerin

Glyserol, Glýserín eða Glycerin er litar- og lyktarlaust alkóhól sem er afar vatnsgleypið, seigfljótandi og er sætt á bragðið. Það hefur þrjá vatnssækna hýdroxýl hópa sem valda vatnsgleypni þess. Glycerin er notað í sápur, snyrtivörur og mat. Glycerin er unnið úr plöntuolíu, er 100% náttúrulegt og niðurbrjótanlegt.
Close Menu
Austurveri
Háaleitisbraut 68
103 Reykjavík
552 1375
info@graenastofan.is