Vefverslun
Þegar þú pantar hjá okkur þá tökum við sendinguna til um leið og greiðsla berst og þér send staðfesting í tölvupósti. Þú getur valið um að sækja til okkar eða fengið sent. Við sendum með Dropp og tekur þá að jafnaði tvo til fjóra virka daga fyrir pöntunina að berast.
Skv. lögum nr. 16/2016 um neytendasamninga hefur þú 14 daga til að skila vöru sem þú pantar í gegnum vefverslunina okkar.
Sendingarkostnaður bætist við um leið og þú velur hvort þú viljir sækja eða senda til þín. Græna stofan skiptir við Dropp og verð sendingar kemur fram þegar þú velur sendingarmáta.
24% lögbundinn virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar og eru öll verð í íslenskum krónum.
Ef varan sem þú pantar af okkur uppfyllir ekki þínar þarfir þá geturðu skilað henni til okkar innan tveggja vikna og fengið endurgreitt að fullu. Varan verður þá að vera óskemmd og í upprunalegum umbúðum, einnig þarf kvittun fyrir viðskiptum að fylgja.
Ef um gallaða vöru er að ræða þá endurgreiðir Græna stofan andvirði hennar að fullu ásamt sendingarkostnaði, ef varan var send til viðskiptavinar. Mikilvægt er að skila vörunni til Grænu stofunnar til að meta gallann og eftir atvikum láta framleiðanda vita.
Þú getur valið um að greiða með millifærslu, á staðnum eða með greiðslukortum og fer þá greiðslan í gegnum örugga greiðslusíðu Teya, eða þú getur greitt með því að fá reikning sendan í heimabanka í gegnum Pei.
Við heitum fullum trúnaði við viðskiptavini okkar og afhendum ekki upplýsingar til þriðja aðila. Þegar þú verslar við okkur þá geturðu valið að skrá þig á póstlistann í leiðinni.
Nánari upplýsingar um okkur:
Græna stofan ehf.
Austurveri, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík
VSK-númer: 125958
Kennitala: 471016-0710
