Nr. 03 Hárnæring Oparfymerat

2.990 kr.5.990 kr.

Handunnin hárnæring með vandlega völdum náttúrulegum efnum. Hárnæringin eykur raka án þess að þyngja hárið og dregur úr losun húðfitu í hárið.
Frábært að nota með hárþvætti (hægt er að þvo á milli eingöngu með hárnæringu).

Hárnæring nr. 03 er fjölnota vara sem einnig er hægt er að nota sem farðahreinsi, líkamskrem (body lotion) á raka húð en auk þess frábær sem húðsápa fyrir viðkvæma húð og börn.
Hentar öllum kynjum.

Ilmefnalaust og ofnæmisvottað
Hefur unnið til fjölda verðlauna.

Vörunúmer: BRUCON03 Flokkar: , Merkimiðar: , , , , ,

Lýsing

Um Bruns hárnæringu Nr. 03

Nr. 03 Hárnæring Oparfymerat er handunnin og mjög mild hárnæring, án allra ilmefna. Við hönnun á þessari mildu hárnæringu vorum við sérstaklega varkárar. Því getur þú deilt baði með barninu. Ef þú ert þunguð eða hefur ofnæmi fyrir ilmefnum eða ilmkjarnaolíum þá er þetta hárnæring sem hentar þér.
Hárnæringin inniheldur lífræna avókadó olíu sem nærir og veitir raka í hárið. Inniheldur einnig lífrænt Aloe Vera ásamt E- vítamíni til að vernda hárið og gefa gljáa.
Nuddið smáum skammti af hárnæringu í hárið og skolið vel á eftir.

Vegan.

Innihaldslýsing:
Aqua, Cetearyl Alcohol, Cetearyl Glucoside, Glycerin, Aloe Barbadensis Extract, Cocos Nucifera, Persea Gratissima, Vitellaria Paradoxa, Simmondsia Chinensis, Lactic Acid, Dehydroacetic Acid.

Um Bruns hárnæringarnar

BRUNS Products hárnæringar eru mildar, náttúru- og umhverfisvænar fyrir fagfólk og almenning.
Hárnæringarnar eru þróaðar af hárgreiðslumeisturum fyrir hárgreiðslufólk.  Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hárgreiðslufólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð.  Innihald hárnæringanna eru úr sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær skaða hvorki umhverfið, fólk né dýr.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í hárnæringarnar og að hárgreiðslusfólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hárgreiðslumeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárgreiðslustofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annarsstaðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nr. 03 Hárnæring Oparfymerat”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *