Nr. 15 Hárkrem Oparfymerad

3.990 kr.5.790 kr.

Handunnið með vandlega völdum náttúrulegum efnum sem hentar öllum hárgerðum og síddum.
Gefur náttúrulegt og mjúkt útlit og veitir gott hald. Er frábær blástursvara.
Græðandi á skemmda hárenda / aflitað hár.
Veitir lyftingu í hárið.
Veitir hitavörn fyrir blásturshitun.
Hentar öllum kynjum.

Ilmefnalaust og ofnæmisvottað

Vörunúmer: BRUKRE15 Flokkur: Merkimiðar: , , ,

Lýsing

Um Nr. 15 Hárkrem

Nr. 15 Hárkrem Oparfymerad er handunnið og milt hár sufflé sem mýkir hárið og lyftir og gerir það að verkum að hárið virðist nýþvegið mun lengur. Ef þú ert með ofnæmi fyrir ilmkjarnaolíum eða hefur viðkvæman hársvörð, eða einfaldlega velur að nota hreinar, ilmefnalausar vörur, þá er þessi vara fyrir þig. Berðu sufflé-ið í blautt hárið og hársvörðinn og blástu með hárþurrku til að fá frábært loft og fyllingu eða leyfðu hárinu að þorna á náttúrulegan hátt til að leyfa krullum að njóta sín án þess að hárið verði klístrað.

Innihaldslýsing:
Aqua, Aloe Barbadensis Leaf Juice, Xantan Gum, Glycerin, Hydrolyzed Silk, Dehydroacetic Acid, Thocopherol, Helianthus Annus Seed Oil.

Um Bruns mótunarvörurnar

BRUNS Products mótunarvörur eru mildar, náttúru- og umhverfisvænar fyrir fagfólk og almenning.

Mótunarvörurnar eru þróaðar af hárgreiðslumeisturum fyrir hárgreiðslufólk. Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hárgreiðslufólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð. Innihald varanna eru úr sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær skaða ekki umhverfið, hvorki fólk né dýr.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í hárnæringarnar og að hárgreiðslusfólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hárgreiðslumeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárgreiðslustofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annarsstaðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Þess vegna skrifa þær undir hverja vöru með stolti.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nr. 15 Hárkrem Oparfymerad”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *