Nr. 22 Djúpnæring Varm bergamot

2.390 kr.7.650 kr.

Besta djúpnæringin 2020 skv. Organic Beauty Awards!

Fæst í stórum umbúðir 350 ml.

Veitir meiri raka og fyllingu en hefðbundnar hárnæringar.

Passar fyrir allar hártegundir.

Djúpnærir.

Inniheldur lífræna jojoba olíu og kókosolíu ásamt lífrænu sheasmjöri.

Kemur í veg fyrir klofna og skemmda hárenda.

Veitir aukinn raka og gefur glansandi og líflegt hár.

Hentar öllum kynjum

Vörunúmer: BRUDJU22 Flokkar: , Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

Um Nr. 22 Djúpnæringu

Nr. 22 Djúpnæring Varm bergamot er handunninn djúpnæringarhármaski með góðu jafnvægi á ilmi og mjúkum undirtón bergamot olíunnar. Varan inniheldur lífræna jojoba olíu sem nærir og gefur aukinn raka í hárið og lífrænt sheasmjör sem kemur í veg fyrir sundraða enda, örvar hársvörðinn og gefur hárinu heilbrigt og glansandi útlit.

Dreifðu ögn af djúphárnæringu í gegnum hreint, rakt hár og nuddið frá rót að endum. Látið standa í minnst 10 mínútur og skolið svo vandlega.
Djúpnæringarmaskann er einnig hægt að nota sem létt krullukrem, takið örlítið af masaknum og blandið með ögn af vatni, nuddið saman og klípið svo í hárendana. Heldur krullunum mjúkm og vel formuðum.

Vegan.

Innihaldslýsing:
Cetearyl Glucoside, Behenamidopropyl Dimethylamine, Glycerin, Cocos Nucifera, Aloe Barbadensis Leaf Juice, Persea Gratissima,Vitellaria Paradoxa, Lactic Acid, Simmondsia Chinensis, Dehydroacetic Acid, Citrus Aurantium Bergamina Fruit Oil, Limonene, Linalool

Um Bruns djúpnæringarnar

BRUNS Products hármaski eru mild, náttúru- og umhverfisvæn djúpnæring fyrir fagfólk og almenning. Djúpnæringarnar veita meiri raka, fyllingu og kemur í veg fyrir sundraða enda og gefur hárinu heilbrigt og glansandi útlit.

Vörurnar eru þróaðar af hárgreiðslumeisturum fyrir hárgreiðslufólk. Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hárgreiðslufólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð. Innihald varanna eru úr sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær skaða ekki umhverfið, hvorki fólk né dýr.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í djúpnæringarnar og að hárgreiðslusfólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hárgreiðslumeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárgreiðslustofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annarsstaðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Þess vegna skrifa þær undir hverja vöru með stolti.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nr. 22 Djúpnæring Varm bergamot”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *