Nr. 02 Hársápa Kryddig jasmin

2.990 kr.5.990 kr.

Handunnið með vandlega völdum náttúrulegum efnum. Hentar fyrir venjulegt, þurrt eða þykkt hár. Frábært fyrir krullað og afró hár. Hentar líka vel fyrir aflitað hár. Eykur raka og fyllingu. Nýr heillandi ilmur af morgundögg, kryddi og jasmín. Hentar öllum kynjum.

Vinsælt hjá þeim sem glíma við psoriasis og exem.

SKU: BRUSHA02 Category: Tags: , , ,

Description

Um Nr. 02 Hársápu

Nr. 02 Hársápa Kryddig jasmin er handunnin hársápa sem umlykur þig í tælandi lykt af döggvotu grasi, kryddi og jasmínu. Það inniheldur lífrænt guar til að gefa fyllingu og lífræna jojoba olíu sem varlega nærir og gefur raka í þurrt hár eða hársvörð.

Þvoið hárið tvisvar með litlum skömmtum í hvort skipti. Seinni umferðin er til að ná fram fullum löðuráhrifum. Skolið vel á milli.

Til að ná fullkomnum árangri mælum við með að klára þvottinn með hárnæringunni okkar Nº 02.

Vegan.

INNIHALDSLÝSING:
Aqua, Decyl Glucoside, Sodium Cocoyl Glutamate, Glycerin, Sodium Laurylglucosides Hydroxypropylsulfonate,  Olive Oil Polyglyceryl-4 esters, Guar Hydroxypropyltrimonium Chloride, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Dehydroacetic Acid, Parfum.

Um Bruns hársápurnar

Allar hársápur eru handgerð með náttúrulegum efnum. Mismunandi tegundir hársápa eru fyrir mismunandi tegundir hárs.

BRUNS Products hársápur eru mildar hársápur fyrir fagfólk og heimili.
Hársápurnar eru þróaðar fyrir fagfólk af fagfólki og er áherslan lögð á að viðhalda gæðum hársins og vellíðan bæði hárgreiðslufólks og notanda vörunnar. Allar hársápurnar eru handgerðar í Svíþjóð og hver og ein og einasta vara er með sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum sem skaða hvorki umhverfið, fólk né dýr.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni sé notað í hársápurnar og að hárgreiðslusfólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið og mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman.

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hárgreiðslumeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárgreiðslustofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annarsstaðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Þess vegna skrifa þær undir hverja vöru með stolti.

There are no reviews yet.

Be the first to review “Nr. 02 Hársápa Kryddig jasmin”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *