Nr. 20 Djúpnæring Engelsk Ros

2.490 kr.7.890 kr.

Besta djúpnæringin 2020 skv. Organic Beauty Awards!

Fæst í stórum umbúðir 350 ml.

Veitir meiri raka og fyllingu en hefðbundnar hárnæringar.

Passar fyrir allar hártegundir.

Djúpnærir.

Inniheldur lífræna jojoba olíu og kókosolíu ásamt lífrænu sheasmjöri.

Kemur í veg fyrir klofna og skemmda hárenda.

Veitir aukinn raka og gefur glansandi og líflegt hár.

Hentar öllum kynjum

Vörunúmer: BRUDJU22-1 Flokkar: , Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

Um Nr. 20 Djúpnæringu

Nr. 20 Djúpnæring Engelsk Ros er handunninn djúpnæringarhármaski með góðu jafnvægi á ilmi og mjúkum undirtón rósarolíunnar. Varan inniheldur lífræna jojoba olíu sem nærir og gefur aukinn raka í hárið og lífrænt sheasmjör sem kemur í veg fyrir sundraða enda, örvar hársvörðinn og gefur hárinu heilbrigt og glansandi útlit.

Dreifið ögn af djúphárnæringu í gegnum hreint, rakt hár og nuddið frá rót að endum. Látið standa í minnst 10 mínútur og skolið svo vandlega.
Djúpnæringarmaskann er einnig hægt að nota sem létt krullukrem, takið örlítið af maskanum og blandið með ögn af vatni, nuddið saman og klípið svo í hárendana. Heldur krullunum mjúkum og vel formuðum.

Vegan.

Innihaldslýsing:
Aqua, Cetearyl Alcohol, Behenamidopropyl Dimethylamine, Glycerin, Cocos Nucifera Oil, Aloe Barbadensis Leaf Powder, Persea Gratissima Oil, Butyrospermum Parkii Butter, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Lactic Acid, Parfum*, Rose Flower Oil*, Geraniol**, Linalool**, Citronellol**, Glyceryl Laurate, Potassium Sorbate, Pentylene Glycol, Sorbic Acid.

*Kjarnaolíur

**Náttúrulegur efnaþáttur í kjarnaolíum.

Um Bruns djúpnæringarnar

BRUNS Products hármaski eru mild, náttúru- og umhverfisvæn djúpnæring fyrir fagfólk og almenning. Djúpnæringarnar veita meiri raka og fyllingu, koma í veg fyrir sundraða enda og gefa hárinu heilbrigt og glansandi útlit.

Vörurnar eru þróaðar af hársnyrtimeisturum fyrir hársnyrtifólk. Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hársnyrtifólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð. Innihald varanna er úr sérvöldum, náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær eru skaðlausar náttúrunni og öllu lífríki.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í djúpnæringarnar og að hársnyrtifólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða fólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman.

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hársnyrtimeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárstofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru of skaðlegar umhverfi og lífríki. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annars staðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Þess vegna skrifa þær undir hverja vöru með stolti.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nr. 20 Djúpnæring Engelsk Ros”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *