Nr. 31 Hárvax Oparfymerat

4.890 kr.

Handunnið með vandlega völdum, náttúrulegum efnum.
Frábært fyrir stutt og meðallangt hár.
Notadrjúgt, heldur allan daginn.
Mótar hárið vel.
Stöðug og mött áferð.
Ilmefnalaust og ofnæmisvottað

Vörunúmer: BRUVAX30-1 Flokkur: Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

Um Nr. 31 Hárvax

Nr. 31 Hárvax er handunnið hárvax sem er stöðugt og með mattri áferð sem heldur allan daginn. Vaxið inniheldur lífrænt bývax og möndluolíu, sem róar hugann og verndar hársvörðinn. Dreifðu vaxinu á milli fingurbrodda og nuddaðu í frá hársverði að endum með fingrunum. Mótaðu hárið eins og þú vilt.

Innihaldslýsing:
Cera Alba, Calcium Carbonate, Magnesium Carbonate, Prunus Amygdalus Oil, D-Phantenol Glycerine, Thocopherol Helianthus Anuus Seed Oil, Piper Nigrum, Illicum Verum, Citrus Arrantifolia.

Um Bruns mótunarvörurnar

BRUNS Products mótunarvörur eru mildar, náttúru- og umhverfisvænar fyrir fagfólk og almenning.

Vörurnar eru þróaðar af hársnyrtimeisturum fyrir hársnyrtifólk. Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hársnyrtifólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð. Innihald varanna er úr sérvöldum, náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær eru algjörlega skaðlausar náttúrunni og öllu lífríki.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í djúpnæringarnar og að hársnyrtifólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða fólk.

Þannig öxlum við ábyrgð saman.

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hársnyrtimeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka Grøn Salon vottaðar hárstofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hefðbundnar hárvörur sem voru skaðlegar umhverfi og lífríki. Bruns products hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annars staðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Þess vegna skrifa þær undir hverja vöru með stolti.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nr. 31 Hárvax Oparfymerat”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *