Lýsing
Nr. 04 Hárnæring Magisk citrus er handunnin hárnæring sem lætur lyktarskynið fara í öflugt og hvetjandi ferðalag um dal fullan af sítrustrjám baðaðan í myntulaufum. Hárnæringin inniheldur lífræna avókadó olíu sem nærir og veitir raka í hárið, lífrænt Aloe Vera ásamt E- vítamíni til að vernda hárið og gefa gljáa.
Nuddið smáum skammti af hárnæringu í hárið og skolið vel á eftir.
Vegan.
Innihaldslýsing:
Salvia Officinalis, Cetearyl Alcohol, Cetearyl Glucoside, Glycerin,
Aloe Barbadensis Extract, Cocos Nucifera, Persea Gratissima, Vitellaria Paradoxa, Simmondsia Chinensis, Lactic Acid, Dehydroacetic Acid, Mentha Viridis Leaf Oil, Cedrus Atlantica Wood Oil, Eucalyptus Citriodora Oil.
Um Bruns hárnæringarnar
BRUNS Products hárnæringar eru mildar, náttúru- og umhverfisvænar fyrir fagfólk og almenning.
Hárnæringarnar eru þróaðar af hárgreiðslumeisturum fyrir hárgreiðslufólk. Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hárgreiðslufólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð. Innihald hárnæringanna eru úr sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær skaða ekki umhverfið, hvorki fólk né dýr.
Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í hárnæringarnar og að hárgreiðslusfólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman
Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hárgreiðslumeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárgreiðslustofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annarsstaðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.
Það eru engar umsagnir enn.