Nr. 01 Hárnæring Harmonisk kokos

2.990 kr.5.990 kr.

Handunnin hárnæring með vandlega völdum náttúrulegum efnum. Hárnæringin eykur raka án þess að þyngja hárið og dregur úr losun húðfitu í hárið.
Frábært til að nota með hárþvotti. (Hægt er að þvo á milli eingöngu með hárnæringu).
Ljúffengur ilmur af kókos og kardimommu.
Hentar öllum kynjum.

Vörunúmer: BRUCON01 Flokkur: Merkimiðar: , , ,

Lýsing

Um Nr. 01 Hárnæringu

Nr. 01 Hárnæring Harmonisk kokos er handunnin mild hárnæring sem dreifir ljúfum ilmi af af heitum, mjúkum kardimommum og framandi kókos. Hárnæringin inniheldur lífræna avókadó olíu sem nærir og gefur raka, lífrænt Aloe Vera ásamt E- vítamíni til að vernda hárið og auka gljáa.
Nuddið smáum skammti af hárnæringu í hárið og skolið vel á eftir.
Vegan.

Innihaldslýsing:
Aqua, Cetearyl Alcohol, Cetearyl Glucoside, Glycerin, Aloe Barbadensis Extract, Cocos Nucifera, Persea Gratissima, Vitellaria Paradoxa, Simmondsia Chinensis, Lactic Acid, Dehydroacetic Acid, Elettaria Cardamomum Seed Oil, Cocos Nucifera Oil, Citrus Sinensis Peel Oil, Styrax Benzoin Resin Oil.

Um Bruns hárnæringarnar

BRUNS Products hárnæringar eru mildar, náttúru- og umhverfisvænar fyrir fagfólk og almenning.
Hárnæringarnar eru þróaðar af hárgreiðslumeisturum fyrir hársnyrtifólk.  Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hárgreiðslufólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð.  Innihald hárnæringanna eru úr sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær skaða ekki umhverfið, hvorki fólk né dýr.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í hárnæringarnar og að hárgreiðslusfólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hársnyrtimeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hársnyrtistofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru hvorki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annars staðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nr. 01 Hárnæring Harmonisk kokos”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *