Nr. 24 Hársápa Blond skönhet

3.290 kr.6.990 kr.

Handunnið silfur sjampó með litarefnum úr jurtalitum. Gulir tónar í hári verða hlutlausir og því hentar það ljósu, gráu eða aflituðu hári.
Sjampóið veitir hárinu meiri glans og hjálpar hárinu að fá náttúrulegan gljáa, eykur fyllingu hársins.

Það má nota sjampóið daglega eða eftir þörfum (einstakir eiginleikar jurtalitanna gera það að verkum að sjampóið slítur hvorki hárinu né þurrkar það upp eins og oft er með lituð sjampó). Ferskur ilmur af greipaldin.

Hentar öllum kynjum.

Vörunúmer: BRUSHA24 Flokkur: Merkimiðar: , , , ,

Lýsing

Um Nr. 24 Hársápu Blond skönhet

Nr. 24 Hársápa Blond skönhet er handunnið, milt sjampó sem eykur raka og dregur úr gulum tónum í lituðu ljósu, gráu og aflituðu hári.
Sjampóið inniheldur campeche sem er einnig kallað blátré, sem gefur þessi köldu blæbrigði í hárið og nauðsynlega greipaldinolíu sem bæði minnkar ertingu í hársverði og geislar af ilmi.

Þvoið hárið tvisvar með litlum skömmtum í hvort skipti. Seinni umferðin er til að ná fram fullum löðuráhrifum. Skolið vel á milli. Við mælum með því að nota hárnæringu No 24 með sama hressandi ilmi til að ná fullum áhrifum. Gott er að hafa í huga að þar sem að vörurnar eru mildar og náttúrulegar þá gæti þurft tvo, til þrjá þvotta til þess að ná fram fullri virkni litarefnanna.

Vegan.

Innihaldslýsing:
Aqua, Decyl Glucoside, Sodium Cocoyl Glutamate, Sodium Laurylglucosides Hydroxypropylsulfonate, Glycerin, Olive Oil Polyglyceryl-4 esters, Guar Hydroxypropyltrimonium Chloride, Xanthan Gum, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Dehydroacetic Acid, Haematoxylum Campechianum, Citrus Paradisi, Boswellia Carterii Oil, Acid Violet 43.

Um Bruns hársápurnar

Allar hársápur eru handgerðar með náttúrulegum efnum. Mismunandi tegundir hársápa eru fyrir mismunandi tegundir hárs.

BRUNS Products hársápur eru mildar hársápur fyrir fagfólk og heimili.
Hársápurnar eru þróaðar fyrir fagfólk af fagfólki og er áherslan lögð á að viðhalda gæðum hársins og vellíðan bæði hárgreiðslufólks og notanda vörunnar. Allar hársápurnar eru handgerðar í Svíþjóð og hver og ein og einasta vara er með sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum sem skaða hvorki umhverfið, fólk né dýr.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni sé notað í hársápurnar og að hárgreiðslusfólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið og mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman.

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hárgreiðslumeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárgreiðslustofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annarsstaðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Þess vegna skrifa þær undir hverja vöru með stolti.