Nr. 03 Hársápa Oparfymerat

2.990 kr.5.990 kr.

Handunnið með vandlega völdum náttúrulegum efnum. Hentar fyrir allar hárgerðir. Lyktarlaust sjampó fyrir þá sem þess óska. Hársápan er einnig fyrir þau sem þjást af ertingu eða eru með viðkvæman hársvörð. Frábært fjölskyldusjampó og hentar afar vel þunguðum einstaklingum. Hentar öllum kynjum.

Ofnæmisvottað.

Vörunúmer: BRUSHA03 Flokkar: , Merkimiðar: , , , , ,

Lýsing

Um Nr. 03 Hársápu

Nr. 03 Hársápa Oparfymerat er handunnið, sérlega milt og án allra ilmefna. Við höfum verið sérstaklega varkárar með þetta milda sjampó. Því getur þú deilt baði með barninu, ef þú ert þunguð eða hefur ofnæmi fyrir ilmefnum. Það inniheldur lífrænt guar til að gefa hárinu fyllingu og lífræna jojoba olíu til að verja viðkvæman hársvörð.

Þvoið hárið tvisvar með litlum skömmtum í hvort skipti. Seinni umferðin er til að ná fram fullum löðuráhrifum. Skolið vel á milli.

Til að ná fullkomnum árangri mælum við með að klára þvottinn með hárnæringunni okkar Nr 03.

Vegan.

Innihaldslýsing:
Aqua, Decyl Glucoside, Sodium Cocoyl Glutamate, Glycerin, Sodium Laurylglucosides Hydroxypropylsulfonate, Olive Oil Polyglyceryl-4 esters,Guar Hydroxypropyltrimonium Chloride,  Xanthan gum, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Dehydroacetic Acid

Um Bruns hársápurnar

Allar hársápur eru handgerðar með náttúrulegum efnum. Mismunandi tegundir hársápa eru fyrir mismunandi tegundir hárs.

BRUNS Products hársápur eru mildar hársápur fyrir fagfólk og heimili.
Hársápurnar eru þróaðar fyrir fagfólk af fagfólki og er áherslan lögð á að viðhalda gæðum hársins og vellíðan bæði hársnyrtifólks og notanda vörunnar. Allar hársápurnar eru handgerðar í Svíþjóð og hver og ein og einasta vara er með sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum sem skaða hvorki umhverfið, fólk né dýr.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í hársápurnar og að hársnyrtifólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið og mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman.

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hársnyrtimeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hársnyrtistofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annars staðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Þess vegna skrifa þær undir hverja vöru með stolti.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nr. 03 Hársápa Oparfymerat”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *