Lýsing
Nr. 02 Hárnærning kryddig jasmin er handunnin mild hárnæring sem umlykur þig í tælandi lykt af döggvotu grasi, kryddi og jasmínu. Hárnæringin inniheldur lífræna avókadó olíu sem nærir og gefur raka, lífrænt Aloe Vera ásamt E- vítamíni til að vernda hárið og auka gljáa.
Nuddið smáum skammti af hárnæringu í hárið og skolið vel á eftir.
Vegan.
INNIHALDSLÝSING:
Aqua, Cetearyl Alcohol, Cetearyl Glucoside, Glycerin, Aloe Barbadensis Extract, Cocos Nucifera, Persea Gratissima, Vitellaria Paradoxa, Simmondsia Chinensis, Lactic Acid, Dehydroacetic Acid, Parfume.
Um Bruns hárnæringarnar
BRUNS Products hárnæringar eru mildar, náttúru- og umhverfisvænar fyrir fagfólk og almenning.
Hárnæringarnar eru þróaðar af hárgreiðslumeisturum fyrir hárgreiðslufólk. Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hárgreiðslufólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð. Innihald hárnæringanna eru úr sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær skaða ekki umhverfið, hvorki fólk né dýr.
Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í hárnæringarnar og að hárgreiðslusfólk sé ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman
Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hárgreiðslumeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárgreiðslustofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki góðar fyrir umhverfið né mannfólk. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annarsstaðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.
Það eru engar umsagnir enn.