Nr. 25 Hárnæring Silverbalsam Ilmlaus – Strength and Shine

3.290 kr.6.990 kr.

Handunnin silfur hárnæring með litarefnum úr jurtalitum. Gulir tónar í hári verða hlutlausir og því hentar það ljósu, gráu eða aflituðu hári. Mýkir hárið og gefur aukinn gljáa. Örvar blóðflæði í hársverði.

Við mælum með að nudda hárnæringunni hressilega og skipulega í hársvörðinn og niður í hárið. Með því móti nærðu að örva blóðflæðið í hársverðinum sem hefur jákvæð áhrif á hársekkina og hárstráið, hárið verður sterkara og glansar meira. Auðvelt að skola úr.

Hentar öllum kynjum.

Frábært til að nota eftir þvott (hægt að þvo á milli eingöngu með hárnæringu).

Vörunúmer: BRUCON24-1 Flokkar: , Merkimiðar: , , , , ,

Lýsing

Um Nr. 25 hárnæringu Silverbalsam – Strength ans Shine

Nr. 25 Hárnæring – Strength and Shine er handunnin og mild silfur hárnæring sem eykur áhrifin af silfursjampóinu á ljósu, gráu og aflituðu hári. Hún inniheldur blátré eða campeche sem kælir og hreinsar, lífræna avókadó olíu og Aloe Vera sem eykur raka og gljáa í hári. Hárnæringin styrkir hárið og gefur fallegan og náttúrulegan glans. Hárnæringin nr. 25 er ilmlaus.

Dreifið ögn af hárnæringu í gegnum hárið og látið standa í nokkrar mínútur.
Skolið vandlega.

Vegan.

Innihaldslýsing:
Aqua, Cetearyl Alcohol, Behenamidopropyl Dimethylamine, Glycerin, Aloe Barbadensis Leaf Powder, Cocos Nucifera Oil, Lactic Acid, Butyrospermum Parkii Butter, Persea Gratissima Oil, Simmondsia Chinensis Seed Oil, Haematoxylum Campechianum Powder, Glyceryl Laurate, Potassium Sorbate, Pentylene Glycol, Sorbic Acid,  Acid Violet 43*. *synthetic origin

Um Bruns hárnæringarnar

BRUNS Products hárnæringar eru mildar, náttúru- og umhverfisvænar fyrir fagfólk og almenning.
Hárnæringarnar eru þróaðar af hársnyrtimeisturum fyrir hársnyrtifólk.  Áhersla er lögð á að viðhalda náttúrulegum gæðum hársins sem og vellíðan hársnyrtifólks og notenda hárvaranna. Allar vörurnar eru handunnar í Svíþjóð.  Innihald hárnæringanna er úr sérvöldum náttúrulegum og lífrænum efnum. Þær skaða ekki umhverfið, hvorki fólk né dýr.

Það er okkur mjög mikilvægt að engin kemísk efni séu notuð í hárnæringarnar og að hársnyrtar séu ekki að vinna með vörur sem skaða umhverfið eða mannfólk. Þannig öxlum við ábyrgð saman.

Johanna Lindskoug og Cecilia C Nilsson eru hársnyrtimeistarar og stofnendur Bruns Products. Þær reka GRON-SALON vottaðar hárstofur í Malmö og Lund í Svíþjóð og hófu að framleiða sínar eigin vörur eftir að hafa unnið með hárvörur sem voru ekki nægilega góðar fyrir umhverfið eða lífríki. Vörurnar hafa sannað sig í Svíþjóð sem og annars staðar og viðskiptavinir þeirra vilja ekkert annað í dag.

Það eru engar umsagnir enn.

Ritaðu fyrstu umsögnina um “Nr. 25 Hárnæring Silverbalsam Ilmlaus – Strength and Shine”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *